Já, það hafa margir misst íslendingameydóminn undanfarið eftir að hafa hitt mig, það er að segja hittu fyrsta Íslendinginn í mér. Í gærkvöldi héldum við nefnilega smá grillveislu í íbúðinni og það mættu um það bil 20 manns, mjög gaman. Allir voru svo farnir klukkan tíu um kvöldið svo við hjóluðum í smá partí í háskólaíbúðum sem eru hérna rétt hjá. Allt í allt voru það svona 20 manns sem misstu íslendingameydóminn, eða íslendingasveindóminn ef það á við, í gær. Það gerðist hins vegar athyglisvert atvik þegar við vorum að hjóla í partíið. Það kom smá keppnisskap upp í mér og ég ætlaði að taka fram úr Mike á ofsahraða en ekki vildi betur til en að ég rak afturhjólið á hjólinu sem ég var á í framhjólið á hjólinu sem hann var á með þeim afleiðingum að hann datt beint í jörðina. Hann var með gítar á bakinu sem slapp þó við meiðsli. Hið sama verður hins vegar ekki sagt um Mike kallinn. Hann var skrámaðist á olnboganum og mjöðminni og buxurnar sem hann var í eru rispaðar. Einnig eyðilögðust leðurhanskar sem hann fékk að gjöf frá mömmu hans, en hún er því miður látin og hafa því tilfinningalegt gildi. Svona er það þegar maður fer að hjóla fullur. Bölvuð vitleysa í alla staði. Ekki er heldur langt síðan hinn Mike-inn var tekinn ölvaður á hjóli og þurfti að dúsa í Detox í fjóra tíma niðri í miðbæ San Diego. Það kostaði sinn aurinn. Annars er það að frétta að við félagarnir erum að öllum líkindum að fara lengst norður í Norður-Kalifornía í Spring Break fríinu. 1200km leið eða svo norður þar sem stærstu tré jarðarinnar vaxa. Þessi staður er um það bil 500km fyrir norðan San Francisco. Þetta verður mjög gaman held ég og ég bíð eiginlega bara spenntur eftir að þessari "önn" ljúki en síðasta prófið mitt er 18. eða 19.mars.
Jamm, maður er mættur aftur í sólina. 25 stiga hiti alla daga síðan ég mætti á svæðið og varla ský að sjá. Svona á þetta að vera. Nú er skólinn byrjaður á fullu líka og allt að gerast. Djöfulsins vesen var samt að komast inn í landið. Handleitað á manni og maður mátti engan handfarangur hafa með sér. Þetta var allt á Íslandi, þegar komið var inn til Bandaríkjanna var þetta allt annað. Ekkert vesen þar.
Annars er það að frétta að ég þurfti að fara í prufu vegna berkla þar sem það kom í ljós að einn nemandi sem tók með mér áfanga var með berkla. Ég fór því í prufu á föstudaginn og þurfti svo að fara aftur í dag til að fá niðurstöðurnar, en ég er semsagt ekki með berkla. Ekki enn allavega, ég þarf nefnilega að fara aftur í febrúar til að skoða þetta. Ef niðurstaðan hefði verið jákvæð hefði ég þurft að fara í einhverja heljarinnar rannsókn, blóðprufu og hefði þurft að láta taka röntgenmynd af brjóstholinu. Á meðan ég bað eftir hjúkkunni sá ég nokkrar stelpur með svona öndunargrímu og heyrði útundan mér að þær þurftu að fara í svona röntgenmyndatöku. Það er vesen.
Ég færði Mike-unum svo sína hvora lopapeysuna þegar ég kom aftur. Þeir voru í skýjunum. Og ég kom líka með smá kúlusúkk og svo náttúrlega Royal búðing, súkkulaði, karamellu og svona þrjá útrunna með jarðarberjabragði sem ég var neyddur til að taka með.
En núna er kominn tími á að fara á Los Primos og svo er það einn af þessum útrunnu í eftirrétt.
Jamm, það er komið að því. MM bauð mér að fara með sér til systur hans, sem býr rétt fyrir norðan Englaborg. Við förum seinna í dag og komum til baka á morgun eða á föstudaginn. Ég býst við að þetta verði nákvæmlega eins og í kvikmyndunum. Sundurleitin fjölskylda sameinast, allir byrja að rífast, sonurinn, sem er hommi, kemur með hommakærastann og svo farið í látbragðsleik. Klassískt. Ef þetta verður ekki nákvæmlega þannig verð ég fyrir mjög miklum vonbrigðum.
En nú þarf ég að fara í skólann í klukkutíma og svo er frí fram á mánudag. Kannski maður geti keypt eitthvað á föstudaginn, enda opna verslanir klukkan 5 um morguninn. Black Friday.
Jebb, núna veit ég hvers vegna Kanar elska hermennina. Því það er frí á Veteran's Day. Semsagt enginn skóli á morgun. Af því tilefni er MW, það er Mike White, að fara í útilegu í San Clemente. Ég og MM, það er Mike Minto, ætlum örugglega að fara út að súperskokka og spila tennis á eftir. En súperskokk er það þegar við drekkum saman eina dós af ofurorkudrykknum Redline.
Annars er það í fréttum að við gætum hugsanlega allir þurft að raka af okkur hárið vegna þess að MM er að sjálfboðaliðast á spítalanum á campus á föstudögum og hann var semsagt að raka og þrífa einhvern heimilislausan fyrrverandi hermann sem var allur þakinn í lús. Fyrrverandi hermenn eru semsagt tryggðir af ríkinu og þess vegna fékk hann meðhöndlun. Ég fann semsagt eitthvað skorkvikindi í handklæðinu mínu í morgun þegar ég kom úr sturtu og það er hugsanlegt að það sé lús. Ég er þess vegna búinn að vera að klóra mér í hausnum í allan dag eins og maður gerir þegar maður heldur að maður gæti verið með eitthvað.
Jamm, ég reyndi að fara á ströndina aftur og í þetta skiptið var hvergi þoku að sjá Jebb, þetta er sólin. Ef þið á Íslandi voruð farin að halda að hún væri horfin þá er hún bara hérna við Kyrrahafið að ylja mér. Annars var veðrið afar gott eins og sjá má á þessari mynd: Scripps Pier í aðeins betra veðri en fyrir viku.
Annars er það að frétta að Reynsluboltinn vann graskersútskurðarkeppni sem haldin var á vegum IEEE félagsins við UCSD. IEEE eru samtök rafmagnsverkfræðinga og var keppnin haldin á vegum nemenda við UCSD sem eru félagar í samtökunum. Ég tók þátt ásamt þremur öðrum og graskerið okkar var einfaldlega það besta og held ég að við munum vinna inneign í StarBucks.
Svo var það náttúrlega hrekkjavakan í gær. Ég fór með Mike Minto, en það er sá sem ég deili herbergi með, hinn er Mike White, norður í appelsínusýslu þar sem systir mömmu hans var með partí. Við dvöldum þar nokkra stund, fórum með krökkunum og foreldrum þeirra að banka uppá hjá fólki. Við komum svo til baka um ellefuleytið en gerðum ekkert sérstakt eftir það. Mikið að gera í skólanum hjá okkur öllum.
Ég fór að vísu á tónleika niðri í miðbæ San Diego á fimmtudagskvöldið að sjá LMFAO. Það var helvíti mikið stuð.
Næst á dagskrá er svo að fara í smá göngu á eitthvað fjall eða upp á gilsbarm eða eitthvað álíka. Það er í svona hálftímafjarlægð. Þetta verður sennilegast á föstudaginn og svo fer ég kannski í einhvern skemmtigarð norður af Los Angeles á laugardaginn, kemur í ljós í vikunni. Annars þarf ég að fara til Kanada bráðlega því ég er alltaf að fá meiri kanadíska smámynt.
En ég kveð að sinni. P.S. ég setti inn nokkrar myndir af háskólasvæðinu og graskerinu sem við skárum út.
Jamm, skellti mér á ströndina í dag, enda var heiðskírt og vel heitt, og er ennþá. Ég var hinsvegar illa svikinn þegar komið var á áfangastað. Scripp's Pier í skemmtilegu veðri. Viðbrögðin voru skiljanleg.
Þetta leit semsagt ekki vel út svo ég ákvað að fara bara í smá göngutúr um ströndina í staðinn. Endaði ég á einhverri uppagötu með engri gangstétt og þurfti að finna götuna sem strætóinn keyrir um án þess að hafa kort. Að vísu var það minnsta mál því ég vissi að ég var með áttirnar á hreinu. Svo þegar ég fann réttu götuna blasti náttúrlega við mér ein mesta snilld Bandaríkjanna. Mexíkóar að breyta einhverjum garði fyrir einhvern uppann. Snilld. Ég endaði svo þessa ferð mína á því að fara bara upp í skóla að lesa, enda var komin þoka yfir allan bæinn svo ég gat ekki farið heim og tyllt mér á sundlaugarbakkann. Vonandi verður ekki þoka á ströndinni á morgun svo ég get farið og tekið almennilegar myndir. Ég verð líka með varann á því nú er ég búinn að finna heimasíðu sem er með webcam af ströndinni.
Mér var boðið í aðra grillveisluna á einni viku í gær. Fékk meira að segja gefins bol, úje. Hamborgarar, pylsur og oreo kex í boði. Ég gerðist meira að segja sjálfboðaliði fyrir viku síðan í fyrri grillveislunni og grillaði þá svona um það bil 500 borgara. Talandi um hamborgara. Ég fór með Mike-unum á stað sem heitir In-n-out og þótti afgreiðslustúlkunni svo athyglisvert að þetta væri fyrsta skiptið mitt á þessum stað að hún kom til mín og beið eftir að ég tæki fyrsta bitann. Maður hefur greinilega ekki lifað fyrr en maður hefur farið á In-n-out, það er klárt mál. Ágætis staður svosem.
Í fréttum er það helst að ég breytti aðeins stundatöflunni minni í gær, síðasta daginn sem það mátti. Ég ætla semsagt að taka áfanga sem er á grunnstigi eða undergraduate level en samt fyrir 4.árs nema (fyrir þá sem ekki vita þá er háskólanám hér fjögur ár, en ekki þrjú eins og heima). Það er því allmikilli pressu af mér létt því áfanginn sem ég var í var einum of mikið. Ég ætla semsagt að taka undanfarann í vor og svo sjálfan áfangann næsta haust. Þá ætti þetta að vera pottþétt. Gott að hafa þetta rólegt fyrsta hlutann. Þetta þýðir líka sennilegast að ég klára pottþétt ekki fyrr en í fyrsta lagi vor 2011. Sæunn ætti því að geta andað rólega, Spring Break 2011 er enn inni í myndinni.
Svo erum við þrír félagarnir að fara að skrá okkur á sjálfsvarnarnámskeið, erum held ég hættir við að spila rúbbí, það stóð til á einhverjum tímapunkti. Ég held að Wing Chuen Kuen Kung Fu verði fyrir valinu. Annars er fjöldinn allur af íþróttanámskeiðum í boði. Köfunarnámskeið, brimbrettanámskeið, pókernámskeið, saumanámskeið ásamt námskeiðum fyrir allar tegundir af íþróttum held ég. Kostar svona 30-80 dollara hvert námskeið.
Annars fór ég á útitónleika í gær þar sem komu fram einhver svakafræg bandarísk hljómsveit sem enginn utan USA hefur heyrt um, Anberlin, og svo The Game sem er án nokkurs vafa lélegasti "rappari" sem ég veit um. Vá hvað hann var aumkunarverður. Eyddi tíma sínum í að skíta yfir flesta aðra rappara og skipti um tónlist á 10 sekúndna fresti ásamt tíðum byssuskotshljóðum. Harður gaur.
En nú ætla ég að horfa á eitthvað skemmtilegt í tölvunni á þessu rólega laugardagskvöldi mínu. Þarf að fara að huga að því að fara á KFC til að gera samanburð og reyna að komast í Batting Cages, það er möst að prófa það. Ég bið að heilsa kalda veðrinu, kannski ég skelli mér í smá sólbað á sundlaugarbakkanum á morgun.
Jæja, ég var að koma úr klippingu og datt í hug að setja niður nokkur orð. Ég fór semsagt með Mike Minto í klippingu á stað sem heitir Paul Mitchell School, sem er einhvers konar skóli fyrir klippifólk og ég lenti á stelpu sem hafði örugglega aldrei klippt karlmann áður, sem var í lagi þar sem ég átti alveg von á því. Verðið var líka eftir því, 12 dalir, nokkuð gott. Á leiðinni til baka komum við á International House of Pancakes þar sem við fengum okkur egg, beikon, eitthvað kartöfludót og svo náttúrlega pönnukökur.
Í síðustu viku fór ég svo í smá bus tour um San Diego með International Center sem skipuleggur ýmsa viðburði eins og I-Café og fleira. Í þeirri ferð gerðist ég svo gríðarlega góður að labba á blindan mann, hversu asnalegt er það? Blindi maðurinn var þarna að labba í sakleysi sínu með blindrahundinum sínum og svo BÚMM, bakkar einhver fáviti með myndavél á hann.
Annars er lítið að frétta, skólinn er byrjaður á fullu og ég skil eiginlega ekkert í bókunum sem ég er að lesa en það reddast allt saman, vonandi.
Allavega, ég ætla núna að fara að skella mér í sundlaugina og lesa skólabækur við sundlaugarbakkann. Svo er bara að vakna klukkan 8 í fyrramálið til að horfa á Chelsea-Liverpool. Leider.
Jæja, er ekki kominn tími á smá uppfærslu. Ég var að koma úr skólanum þar sem ég hitti námsráðgjafa. Ekki frá miklu að segja þar svosum. Eftir það fór ég í bókabúðina á campus og þar reyndi ég að finna mér glósubók en úrvalið var svo yfirgengilegt að ég átti ekki til eitt einasta orð. Það er allt til í þessari búð. Frá nærbuxum til herðatrjáa og allt þar á milli, nema matur. Það er á öðrum stað. En allavega, það voru svona 20 mismunandi gerðir af glósubókum og engin þeirra rúðustrikuð. :/ Ég ákvað að taka bara eina í þetta skiptið, tók einhverja sem á að vera búin til úr endurunnum pappír, ég reyndi semsagt bara að finna ódýrustu bókina.
Síðan í síðustu viku er ég búinn að hjóla fjórum sinnum á campus og kem eflaust til með að gera það á hverjum degi þegar skólinn byrjar. Annar Mike-inn kom með fjallahjólið sitt sem hann sagði að ég mætti nota að vild, fyrir voru þeir með sitt hvort hjólið, Mike-arnir tveir.
Ég er líka búinn að fara í tennis og annar Mike-inn sagði að ég væri orðinn betri en hann nú þegar þó ég hafi aldrei spilað tennis áður. Sennilegast er það af því ég er svo ógeðslega góður í badminton. Tennis er allavega eitthvað sem ég væri vel til í að stunda áfram. Svo ætluðum við að fara í innanhúsklifur í gær en komumst svo að því að húsið var lokað. Þá fórum við bara til nokkurra félaga sem búa á campus í staðinn og spiluðum smá bjór-pong þar sem reglurnar eru flóknari en halda mætti.
Um helgina fórum við í nokkur partí. Á föstudaginn var bonfire á ströndinni þar sem kveikt smá bál og fólk gat eldað sér pylsur og dót, ekkert flóknara en það samt. Svo á laugardaginn fórum við í partí í I-house, sem er stytting á International House en það er staður þar sem flestir erlendu nemendurnir búa en einnig kanar. Á sunnudaginn fórum við svo á campus þar sem eitthvað partí var í gangi fyrir litlu krakkana, það er krakkana sem ekki hafa hlotið B.A. eða B.Sc. gráðu ennþá. Þeir voru semsagt að flytja inn um helgina og nú er campusinn allur fullur af fólki, sem var ekki þannig í síðustu viku en þá var hann nánast tómur.
Mike-arnir eru búnir að kynna mig fyrir nokkrum af vinum sínum nú þegar og ég er semsagt gamli maðurinn í hópnum, það er alltaf gaman. Sem betur fer er annar Mike-inn bara einu ári yngri en ég en vinir þeirra eru semsagt 19 ára eða tvítugir. Allt mjög indælir krakkar og einn þeirra, Alfred, eldaði meira segja fyrir mig og annan Mike-inn í gær eftir að aðalmötuneytinu á svæðinu var lokað.
En jæja, ég er að spá í að huga að kvöldmat núna svo ég bið að heilsa ykkur í bili. Best friends.